arna.bloggar.is
sććlArna Hrönn Ágústsdóttir
Ókeeeei. Prófin eru víst löngu liðin svo ég hef enga afsökun fyrir bloggleysi en allt í einu datt mér í hug að blogga. Það vill nefnilega til að ég hef einmitt uppgötvað gamlan vin = tölvuna mína.. hef ekkert verið of mikið hér upp á síðkastið. Kannski maður gerist netnördi aftur? Who knows..
Eníveis.. sumarið byrjað! Kominn júlí! djí þetta líður hratt.. mánuður í sólina og allt að gerast.. Sumarið mitt hefur að mestu leyti einkennst af vinnu, maður er alltaf að vinna. Liggur við að maður búi á þessu blessaða elliheimili en núna eru einungis 20 vaktir eftir, THANK GOD. Maður er alveeeeg að fá sinn skammt, bjargaði þó sumrinu að Alexandra byrjaði að vinna með mér! Það var helvíti fínt, fyrir utan hvað við virðumst vera að vinna fáar vaktir saman...´
Hvenær ætli almennilegt sumar komi? Þá meina ég sumar sem fylgir með sól og tilheyrandi. Maður er farinn að spyrja sig hvort það komi nokkuð! Heill mánuður liðinn og við höfum nánast bara fengið rigningu og e-ð skíta veður sem enginn sættir sig við. Hvernig væri nú að koma með smá sól hmmm.. það þurfa kannski sumir að vörka tanið, hefuru hugsað út í það? greinilega ekki..
Farið að styttast í skólann bara og jú bílprófið mitt þar sem ég á einmitt afmæli á skólasetningunni, þannig maður er soldið spenntur.. verður fínt að fá bílpróf
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, bara smá innskot af sumrinu.. hver veit nema ég byrji að blogga aftur á fullu? sjáum til ;)
Arna Hrönnnn
BloggArna Hrönn Ágústsdóttir
Sælt veri fólki. Já það ólíklegasta hefur gerst ég önnum kafin í prófum sit hér við tölvuna að blogga í stað þess að vera lærandi á milljón. Það mætti segja að maður sé kominn með nett prófaþunglyndi að loka sig svona inni að læra sem er slæmt þar sem það eru fjööööögur stk eftir, Guð hjálpi mér.Prófin hafa gengið í heildina séð VEL, sleppum bara að tala um misheppnað f***ing word próf sem fór ekki eins og ætla mætti en þannig er nú bara það.
En já dagarnar hjá mér frá því að prófin hófust hafa eiginlega bara verið læra læra læra læra læra alla daga og hitt Ella minn aðeins inn á milli en annars hefur maður bara verið að rotna yfir bókinni, sem er gott einkunnalega séð en félagslega séð slæmt.
Ég ákvað bara að skella inn einni lítilli bloggfærslu meðan ég er að bíða eftir henni ólöfu minni sem er að koma að sækja mig. Ég, Maja og hún ætlum aðeins að kíkja út, smá upplyfting frá bókunum. Langaði líka að segja frá því að rétt áðan var ég að horfa á OC, alveg merkilegt hvað ég dýrka þessa þætti, Seth kemur mér eiginlega alltaf gott skap.
En nóg í bili ég er farinn
Arna SÚPERLÆRARI
Próóóf!Arna Hrönn Ágústsdóttir
Já þá eru prófin byrjuð þannig ég mun eflaust ekkert blogga fyrr en eftir þau ;) .. eða jafnvel fyrr hver veit?Sjáumst eftir prófin!

-Arna Hrönnn
JájáArna Hrönn Ágústsdóttir
Sæl veriði. Já, nú eru nokkrir dagar síðan síðast. Ekki þó halda að það sé e-ð bloggleysi í gangi, nei nei nei það mun ekki gerast hér á þessari síðu... vonandiSmá úrdráttur frá helginni og síðustu dögum...
Um helgina gerði ég voða lítið. Var að vinna báða dagana, eða átti að vera að vinna báða daganna öllu heldur en varð aðeins veik þarna á laugardagskvöldið, svo það var bara tekið chillið á sunnudaginn og gert ekkert. OG já ég og Elli áttum hálfs árs afmæli á föstudaginn;*
Mánudagurinn var bara skóli eins og vanalega, skrítið að spá í að það hafi verið síðasti mánudagsskóladagurinn á þessu skólaári og dagurinn í dag síðasti þriðjudagsskóladagurinn á þessu skólaári.. mmm hljómar veeeel ;]
En í gær jú þá fór ég í klippingu og liiitun. Og já má segja að ég hafi breytt aðeins um hárlit, setti aðeins ljósar strípur ooog já ég er ekki alveg að venjast þessu hmmm... Veitekki hvað gjöra skal, kannske breyta í alveg dökkt bara aftur? tjahh hef allavegna meira pælt í því eftir að Helgi yyyndislegi sagði að ég væri alveg eins og mammans þegar hún væri nýkomin úr klippó, gjí thx.. Vill helst ekki láta líkja mér við mömmur ;D ..
En í dag hitti ég Aþenu sætu í hádegishlénu og það telst merkisatburður þar sem ég hef ekki hitt stelpuna lengi og var það bara voða gaman að tala aðeins við hana. Maður er farinn að sakna kellu :*
En ég læt þetta bara duga í bili, bless !
Arna Hrönn
Sumardagurinn 1.Arna Hrönn Ágústsdóttir
Í dag fór ég mína fyrstu ökuferð í æfingarakstri og það var jáá skelfilegt. Pabbi þurfti nánast áfallahjálp eftir að við keyrðum upp á kant og var næstum keyrt á okkur. Eeen þetta kemur haaa, hef enn tæpa 4 mánuði til að æfa mig. Held ég byrji fyrst bara svona einhverstaðar þar sem ég get ekki keyrt á neinn á einhverjum afskektum stað, já mér lýst vel á það. En allavegna við pabbi tókum þennan svaka rúnt til ömmu sem á afmæli í dag, til hammó amma;* oog þar biðu okkur kökur og fínerí, fólk var farið að hafa svolitlar áhyggjur af okkur þar sem við vorum hva klst á leiðinni frá grafarvogi og niðrí bæ. Síðan keyrði ég aftur heim og þá var þetta e-ð skárra held ég?...
Já nú þarf maður sko aldeilis að læraa, því nú eru prófin að koma. Ég er núna búin að eyða síðustu 2 klst í að skilja þessa blessaða stærðfræði, vonandi að maður sé að koma einhverju inn í heilabúið.
Leiðinlegt að það sé ekki frí líka á morgun þar sem helgin verður baraa eintóm vinna. Hata vinnuhelgar, maður verður nánast þunglyndur við tilhugsunina rétt fyrir helgar að það sé vinnuhelgi næstu helgiiii. Spurning um að skipta um vinnu? tjahhh..
Ein gömul sumarmynd í lokin í tilefni dagsins ;]
Arna Hrönn
Síđasti vetrardagurinnArna Hrönn Ágústsdóttir
Síðasti vetrardagurinni segiði? Eins gott að þetta sé endirinn á snjónum og þessu ógeðis veðri. Það yrði of svekkjandi ef það færi t.d. að snjóa eftir sumardaginn fyrsta.En í dag var fyrsti skóladagurinn eftir páska sem var bara betri en ég bjóst við, gaman að hitta alla krakkana aftur. Nokkrir búnir að bætast við í bílprófshópinn í páskafríinu sá ég, þar á meðal Bryndís sæta sem skutlaði okkur stelpunum á Nings í hádeginu til að kaupa okkur kjúklinganúðlur mmm..
Mér finnst geðveikir svona dagar eins og sumardagurinn fyrsti þar sem maður fær bara frí í skólanum, ættu að vera fleiri svona dagar á veturnar svo maður fengi frí af og til, mm það væri sko nice. Í kvöld ætla ég að gera e-ð kósí, svo á morgun sofa úúút og jafnvel heimsækja ömmu sem á afmæli og jú testa æfingarleyfið mitt, ef ég þori.
Læt þetta duga í bili, er farin að læraaaaa..
Blogg nr. 2 !Arna Hrönn Ágústsdóttir
Þá hef ég ákveðið að gera tilraun nr. 2 til þess að blogga hér á þessari splunku nýju síðu minni!
Í dag er SÍÐASTI dagur páskafrísins, en á morgun byrjar skólinn aftur á fullu. Nú verður ekki lengur hægt að sofa út og hanga alla daga, nei nei púlið tekur við. Í tilefni þess að páskafríið sé á enda ætla ég að telja upp svona það helsta sem gerðist í páskafriínu...
Páskafríið hófst með því að við stelpurnar í bekknum elduðum saman heima hjá Maju ljúffengan kjúklingarétt að hætti Ólafar, sumir voru hressari en aðrir. Síðan stakk Ólöf nokkrum dögum seinna af til spánar og er ekki enn komin á klakann, hennar er mikið saknað. Ágúst litli bró stakk einnig af til útlanda þessa páskana til að keppa í körfubolta í Svíþjóð. Það má segja að heimilslífið hafi verið frekar ljúft þessa páskana. Nene ég saknaði þín krúttíprútt!
Ég, Elli og strákarnir héldum ófá spólukvöldin en ég reyndar sá bara parta af öllum myndunum sökum svefnlyfs sem virðist vera í sófanum heima hjá Ella. Eyddi miklum tíma í Félló (félagsmiðstöð Ella). Ég borðaði auðvitað yfir mig af fínum mat þessa páskana eins og flestir, nú verður bara fastað næsta mánuðinn. Maja sæta heimsótti mig 2 upp í sveit. Í fyrra skiptið reyndar bara til að slæpast en í seinna skiptið til að læra með mér bókfærslu sem við gerðum í góðar 2 klst. Ökuskóli 1 var kláraður! húrra fyrir því.. Ég, Maja og Birna kíktum í "partí" hjá Magga í kóp, ég rakst á Nonna og Elli bjargaði mér frá stiganum ooo hetjan mín;* .. Maggi henti mér síðan út í lokin fyrir að fá lánaða skeiðina hans og sulla niður.
Í heildina séð var þetta bara gott páskafrí..
Þetter orðið gott og ég er farin .. 
Arna Hrönnnnn
Fyrsta bloggiđ!Arna Hrönn Ágústsdóttir
Ég hef ákveðið að gera síðustu tilraun til að gera bloggsíðu. Síðan okkar aþenu www.blog.central.is/on-fire er á grafarbakkanum og hún hefur fært sig yfir á www.blog.central.is/musur þannig ég ætla að byrja nýtt upphaf hér ;]
Páskafríið er búið að líða hratt. Ég sem ætlaði að gera hitt og þetta og hefur ekki tekist að standa við neitt af því nema jú tók til í herberginu mínu sem mikil þörf var á. Strax eftir páskafríið taka síðan við síðustu skóladagarnir og svo skellir maður sér í próflesturinn. Þar á eftir tekur sumarfríið við sem verður góð tilbreyting frá kuldanum og skólanum, en þá kemur auðvitað í staðinn endalaus vinna jéh.
En ég ætla að láta þetta duga í bili sem fyrsta prufubloggið
Later ;*